Karen Tinna borin af velli eftir árekstur
ÍR

Karen Tinna Demian, leikmaður ÍR, var borin af velli eftir þungt högg í 29-22 tapi gegn Fram í Olís-deild kvenna í dag. Samkvæmt heimildum Handkastsins eru meiðslin vægari en óttast var í fyrstu.

Atvikið átti sér stað í upphafi síðari hálfleiks þegar Karen Tinna og Katrín Anna Ásmundsdóttir, leikmaður Fram, lentu í hörðum árekstri í þann mund sem Karen Tinna sótti að marki Fram. Karen Tinna fékk aðhlynningu á vellinum í nokkrar mínútur áður en hún var borin af velli, að því er mbl.is greinir frá.

Samkvæmt heimildum Handkastsins fékk Karen Tinna hnykk á hálsinn. Hún sat á varamannabekk ÍR undir lok leiks.

Karen Tinna skoraði fimm mörk og var lengi vel markahæst hjá ÍR. Sara Dögg Hjaltadóttir endaði markahæst í liði ÍR með sex mörk.

Hægt er að sjá atvikið hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top