Óvenjuleg mistök hjá dönsku úrvalsdeildarfélagi
(Kristinn Steinn Traustason)

Danska handknattleiksfélagið Ribe-Esbjerg HH virðist hafa gert mistök þegar félagið tilkynnti á laugardaginn að Sasser Sohn væri á leið til Bjerringbro-Silkeborg eftir tímabilið. Upplýsingarnar voru birtar í opinberri tilkynningu félagsins en skömmu síðar var þeim eytt.

Ribe-Esbjerg tilkynnti upphaflega að Sasser Sohn, skytta liðsins, myndi yfirgefa félagið að loknu yfirstandandi tímabili.

Í sömu tilkynningu kom fram að næsti áfangastaður hans yrði Bjerringbro-Silkeborg Håndbold (BSH), sem leikur einnig í dönsku úrvalsdeildinni.

Skömmu síðar var hins vegar sá hluti tilkynningarinnar sem fjallaði um félagaskiptin til BSH fjarlægður.

Allt bendir því til þess að Ribe-Esbjerg hafi birt upplýsingarnar fyrr en til stóð enda hefur Bjerringbro-Silkeborg ekki enn kynnt Sohn sem nýjan leikmann félagsins.

Danski miðillinn Sport Silkeborg hefur fjallað um málið og óskað viðbragða frá Bjerringbro-Silkeborg vegna upplýsinganna sem birtust hjá Ribe-Esbjerg.

Félagið hefur hins vegar ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu.

Það er því staðfest að Sohn yfirgefur Ribe-Esbjerg eftir tímabilið en enn er beðið eftir opinberri staðfestingu á því hvert hann heldur næst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top