Íslendingaliðið átti enga möguleika gegn sjöföldum Evrópumeisturum
Timon Peters

Þýska úrvalsdeildarfélagið HSG Blomberg-Lippe, lið íslensku landsliðskvennanna Díönu Daggar Magnúsdóttur og Elínar Rósu Magnúsdóttur tapaði með fimmtán marka mun gegn ungverska stórliðinu Györ, 36–21 í Meistaradeild Evrópu í gær.

Györ hefur unnið Meistaradeild Evrópu sjö sinnum og sýndi mikla yfirburði gegn þýska meisturunum í gær.

Blomberg-Lippe er að taka þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins og hefur átt erfitt uppdráttar gegn bestu félagsliðum álfunnar en liðið hefur tapað öllum leikjum sínum í keppninni til þessa.

Elín Rósa skoraði tvö mörk og Díana Dögg eitt en lokatölur urðu 21-36 Györ í vil. Ungverska liðið hafði tögl og hagldir í leiknum og markverðir þess, Zsófi Szemerey og Hatadou Sako áttu stóran þátt í sigrinum en þær vörðu samtals sautján skot.

Györ hefur unnið alla leiki sína í Meistaradeildinni á tímabilinu og er í efsta sæti síns riðils.

Díana Dögg og Elín Rósa eru báðar í íslenska landsliðshópnum sem leikur á Evrópumótinu sem hefst síðar í þessum mánuði.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top