Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, hefur gert eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir leikinn gegn Eistlandi í undankeppni Evrópumótsins 2028 sem fram fer í Tallinn í dag. Teitur Örn Einarsson kemur inn í hópinn í stað Elliða Snæs Viðarssonar, sem lék með íslenska liðinu gegn Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið. Elliði Snær fékk leyfi frá landsliðsverkefninu af persónulegum ástæðum og var því fyrirfram ljóst að hann myndi ekki taka þátt í leiknum gegn Eistlandi. Að öðru leyti er hópurinn óbreyttur frá leiknum gegn Úkraínu þar sem íslenska liðið hóf undankeppnina með stórsigri. Athygli vekur að Viggó Kristjánsson sem tók út leikbann í síðasta leik er ekki í leikmannahópnum í dag. Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan 16:00 í Tallinn og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.