Rétthenta skyttan í liði Aftureldingar hún Rakel Dóróthea Ágústsdóttir varð fyrir því óláni fyrir stuttu síðan að slíta krossband. Rakel Dóróthea er uppalin hjá HK en kom til Aftureldingar frá Stjörnunni síðastliðið sumar. Hún hafði farið gríðarlega vel af stað hjá Aftureldingu og var með 35 mörk í 5 leikjum áður en þetta leiðindaróhapp varð í leik Aftureldingar og Víkings þar sem hún sleit krossband. Handkastið fékk viðbrögð frá Rakel við þessum meiðslum. "Já ég meiddist í leiknum á móti Víking og vissi eiginlega bara strax, miðað við hvernig þetta var seinast, að ég hefði slitið krossband aftur. Ég komst mjög fljótt í myndatöku og fékk síðan símtalið þar sem hann sagði mér að það væri slitið. En allt annað er heilt." "Núna er ég bara að vinna í því að styrkja mig vel fyrir aðgerðina sem verður 15. desember, þannig ég verð fljótari að ná styrknum aftur. Markmiðið er að vera byrjuð aftur að spila um áramótin 27/28 og koma sterkari til baka," sagði þessi unga og öfluga skytta að lokum. Handkastið sendir bestu batakveðjur á Rakel Dórótheu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.