Theodór Sigurðsson - Árni Bragi Eyjólfsson ((Kristinn Steinn Traustason)
Íslands- og bikarmeistarar Fram eru mættir til Sviss þar sem liðið mætir HC Kriens síðar í dag í 3.umferð Evrópudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 17:45 og verður sýndur í beinni hjá Livey. Fram er á botni D-riðils án stiga eftir tvö töp gegn Porto og Elverum á heimavelli en HC Kriens er með tvö stig í 3.sæti riðilsins með jafn mörg stig og Elverum. Porto er með fullt hús stiga á toppi riðilsins. HC Kriens sitja í 6.sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar með 10 stig en hafa einungis leikið sjö leiki á meðan hin hliðin hafa spilað allt frá 11 og uppí 13 leiki á mótinu. Liðið hefur því tapað fjórum stigum í deildinni sem eru jafn mörg töpuð stig og liðið í 2.sæti, Pfadi Winterthur. Marin Sipic er markahæsti leikmaður HC Kriens í fyrstu tveimur umferðunum með 15 mörk og Luca Sigrist kemur næstur með 14 mörk. Hjá Fram hefur Ívar Logi Styrmisson skorað mest Framara, 13 mörk talsins og þeir Theodór Sigurðsson og Rúnar Kárason koma næstir með 11 mörk hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.