Fram ((Kristinn Steinn Traustason)
Í kvöld mættust HK 2 og Fram 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Lambhagahöllinni.
HK-ingar voru betri í byrjun leiks og eftir korter var staðan orðin 6-11. Mest náðu þeir 7 marka forskoti í fyrri hálfleik en þeir fóru inn til búningsherbergja með 5 marka forskot. 11-16 var staðan þegar dómarar leiksins flautuðu til hálfleiks.
Eftir 15 mínútur í seinni hálfleik var staðan 18-22. Fór það svo að lokum að lokatölur urðu 26-29 fyrir HK. Sanngjarn og tiltölulega öruggur sigur hjá HK.
Hjá Fram var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 8 mörk. Garpur Druzin Gylfason varði 12 skot.
Hjá HK 2 var Örn Alexandersson markahæstur með 11 mörk. Patrekur Jónas Tómasson varði 12 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.