Íþróttastjórinn neitar ásökunum að hafa sýnt stuðningsmönnum fingurinn
Martin BERNETTI / AFP)

Íþróttastjóri danska úrvalsdeildarliðsins Ringsted, Morten Olsen neitar ásökunum um að hafa gefið stuðningsmönnum Bjerringbro/Silkeborg fingurinn eftir sigur Ringsted gegn liðinu í 8-liða úrslitum danska bikarsins í vikunni.

Morten Olsen lék með Bjerringbro-Silkeborg á ferlinum tímabilið 2007-2010 og svo lauk hann ferlinum í sumar eftir eins og hálfs árs veru hjá félaginu. Í dag er hann íþróttastjóri Ringsted þar sem Íslendingarnir, Ísak Gústafsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson leika með.

Morten Olsen viðurkennir að hafa fagnað fyrir framan stuðningsmenn Bjerringbro-Silkeborg eftir 30-29 sigur TMS Ringsted í 8-liða úrslitum bikarsins á miðvikudagskvöldið en neitar alfarið ásökunum um að hafa gefið stuðningsmönnum fingri og hrópað dónalegum orðum til þeirra.

Eftir leikinn lýsti Midtjyllands Avis því hvernig Olsen, í fagnaðarlátunum eftir leik, á að hafa hlaupið að 150 stuðningsmönnum BSH sem voru með honum í för og hagað sér óíþróttamannslega. Meðal viðstaddra ræddi Henriette Fuglsang, stuðningsmaður BSH, við blaðið um meinta hegðun Olsen. 

Olsen hafnar þessari fullyrðingu hinsvegar og leggur áherslu á að hann hafi aðeins fagnað sigrinum í átt að stuðningsmönnum BSH meðal annars í kjölfar munnlegrar áreitni úr stúkunni. Samkvæmt Olsen var hann uppnefndur í leiknum af stuðningsmönnum félagsins.

„Ég gæti ekki hugsað mér að hafa gert þetta,“ segir Morten Olsen viðTV 2 Sporten og útskýrir að myndbandsupptökur af atvikinu sýni hann fagna með krepptum hnefum og handleggjunum niður með síðum. Hvergi sést í myndskeiðinu Olsen sýna stuðningsmönnum BSH löngutöng. TV 2 Sport hefur séð myndbandið og staðfestir orð Olsen. 

Samkvæmt Morten Olsen fóru aðdáendurnir að hrópa „Morten Møgsvin“ eða á íslensku “Morten skítuga svín”.

Með sigrinum er TMS Ringsted komið í undanúrslit bikarsins og mætir þar Sønderjyske. GOG og Álaborg mætast í hinum undanúrslitaleiknum í Boxen í Herning 14. febrúar, en úrslitaleikurinn og bronsleikurinn verða leikinn daginn eftir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top