

Færeyingurinn Dánjal Ragnarsson hefur framlengt samning sinn við Fram til næstu þriggja ára. Dánjal gekk í raðir Fram á láni frá Neistanum í Færeyjum í upphafi tímabilsins en hefur nú framlengt veru sína á Íslandi og verður með Fram næstu þrjú ár. ,,Dánjal kom óvænt inn í liðið seint síðast liðið sumar og spilaði sig strax vel inn í liðið. Eins eftir tíma sinn í Vestmannaeyjum talar Dánjal einstaklega góða íslensku og féll hrikalega vel inn í hópinn og félagslífið. Það styrkir hópinn mikið að halda Dánjal áfram innan okkar raða og erum við gríðarlega sátt með að halda í Dánjal," segir í tilkynningunni frá Fram. Einar Jónsson þjálfari meistaraflokks lagði mikla áherslu á að halda Dánjal áfram og hafði þetta um málið að segja. ,,Ég er virkilega ánægður með að halda Dánjal áfram, ég kynntist honum á tíma mínum í Færeyjum og hann er mjög skemmtilegur sóknarmaður sem sýndi á köflum frábærar frammistöður í vetur. Ég veit líka að það býr meira í honum og munum við í Fram leggja mikið á okkur til að kalla það fram hjá Dánjal." Dánjal skoraði 78 mörk fyrir Fram í 19 leikjum í vetur og var annar markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.