Ætlum okkur að gera töluvert betur en á liðnu tímabili
KÍF

Handknattleiksþjálfarinn Viktor Lekve hefur lokið sínu fyrsta ári sem þjálfari karlaliðs KÍF, í Færeyjum en hann tók við liðinu síðasta sumar eftir að hafa þjálfað hjá KA.

KÍF endaði í 6.sæti færeysku úrvalsdeildarinnar með 14 stig en sjö lið leika í deildinni. Team Klaks enduðu með eitt stig en Neistin var í 5.sæti með 15 stig.

Handkastið heyrði í Viktori Lekve á dögunum og spurði hann aðeins út í tímabilið sem nú er á enda en liðið féll úr leik í úrslitakeppninni eftir tap gegn STíF.

,,Tímabilið byrjaði í raun mjög vel hjá okkur og eftir fyrstu umferð af þremur vorum við í kringum toppinn en um það leiti lendum við svo í töluverðum áföllum, svipað og hefur sést hjá liðum eins og Stjörnunni. Við misstum sex lykilmenn í meiðsli sem enda svo á að spila ekkert meira á tímabilinu. Vont varð svo verra þegar báðir leikmennirnir sem komu inn fyrir tímabilið og voru í stórum hlutverkum duttu líka út í lok árs," sagði Viktor Lekve sem segir að það hafi reynt mikið á leikmannahópinn á þessum tímabili.

,,Eftir áramótin litaðist gengi liðsins af þessu og úrslitin voru oft erfið, en við náðum samt inn á milli nokkrum mjög sterkum sigrum sem sýndu hvað býr í hópnum þegar allt smellur."

Viktor er hvergi banginn og segist bjartsýnn fyrir komandi tímabili.

,,Markmiðin fyrir komandi tímabil eru skýr, við ætlum okkur að gera töluvert betur en á liðnu tímabili. Við fáum flesta leikmenn til baka úr meiðslum í sumar og með réttum styrkingum getum við verið í toppbaráttunni."

Benedikt Emil Aðalsteinsson gekk í raðir KÍF í upphafi tímabils en kom aftur heim til Íslands á miðju tímabili. Viktor hvetur íslenska leikmenn að skoða þann möguleika að koma til Færeyja og spila í skemmtilegri deild.

,,Ég myndi klárlega hvetja leikmenn frá Íslandi til að skoða þann möguleika að koma hingað út. Hér er mjög gott umhverfi til að þroskast, fá meiri ábyrgð og upplifa að standa á eigin fótum í umhverfi sem er nálægt hálf atvinnumennsku. Fyrir rétta leikmenn eru í boði góðir samningar og þetta er frábært tækifæri, enda fylgjast félög í Skandinavíu og jafnvel Þýskalandi vel með þessari deild," sagði Viktor og bendir á að á undanförnum árum hafa fjöldi leikmanna sem standa sig vel í Færeyjum verið að fá samninga hjá flottum liðum í Danmörku og Svíþjóð.

,,Ef einhver vill skoða þennan möguleika hvet ég hann til að hafa samband og sjá hvað stendur til boða," sagði Viktor að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top