Dinart tekur við landsliði Lúxemborgar
Ole Martin Wold / AFP

Franska handboltagoðsögnin Didier Dinart hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karla landsliðs Lúxemborgar.

Dinart tekur við starfinu eftir að samningur hans við landslið Svartfjallalands rann út á dögunum. Undir stjórn Didier Dinarts mistókst Svartfjallaland að vinna sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári en liðið féll úr leik eftir tap í umspilsleikjum gegn Slóveníu.

Leikmenn vilja goðsögnina burt

„Ég er stoltur af þeim tíma sem við áttum saman og þakklátur fyrir það traust sem mér var sýnt. Ég hef hins vegar ákveðið að taka tilboði frá landsliði Lúxemborgar, einkum af fjölskylduástæðum og með langtímaáætlanir mínar í huga,“ sagði Dinart við brottför sína frá Svartfjallalandi.

Dinart tekur við af Þjóðverjanum Maik Handschke, sem lét af störfum hjá Handknattleikssambandi Lúxemborgar í apríl.

Helsta verkefni Dinarts verður að undirbúa landslið Lúxemborgar fyrir undankeppni Evrópumótsins 2028.

Í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Lúxemborgar segir að ráðningin endurspegli metnað sambandsins til að efla handknattleik í landinu.

Didier Dinart á að baki einn glæsilegasta feril sem handknattleiksmaður hefur átt. Hann varð tvívegis Ólympíumeistari, þrívegis heimsmeistari og tvívegis Evrópumeistari með franska landsliðinu. Sem landsliðsþjálfari stýrði hann Frakklandi til heimsmeistaratitils árið 2017 og stýrði landsliði Svartfjallalands frá árinu 2024.

Dinart lék yfir 230 landsleiki fyrir Frakkland á sínum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top