Lettneska undrabarnið Valdis Kalnins heldur áfram að slá í gegn á Evrópumóti U20 landsliða. Hinn 18 ára gamli hægri skytta hefur nú sett nýtt markamet í sögu yngri landsliða Evrópu. Kalnins skoraði hvorki meira né minna en 20 mörk úr 27 skotum í leik Lettlands gegn Serbíu og bætti þar með enn einni stórkostlegri frammistöðunni við mótið. Með þessum leik hefur hann skorað alls 93 mörk í sjö leikjum, eða að meðaltali rúmlega 13 mörk í leik. Enginn leikmaður hefur áður skorað jafn mörg mörk á Evrópumóti U20 eða U18 landsliða. Kalnins bætti þar með 20 ára gamalt met Eistans Mait Patrail, sem skoraði 84 mörk á U18 Evrópumótinu árið 2006. Kalnins hefur verið nánast óstöðvandi allan keppnistímann og skorað: Þrátt fyrir að Lettland sé ekki meðal stærstu handboltaþjóða Evrópu hefur Kalnins verið einn allra skærasti leikmaður mótsins. Frammistaða hans hefur vakið mikla athygli og metið undirstrikar hversu ótrúlegt mót hinn 18 ára gamli leikmaður hefur átt.
Flest mörk í sögu U20/U18 Evrópumóta
Leikmaður Mót Mörk Valdis Kalnins (Lettland) U20 EM 2026 93 Mait Patrail (Eistland) U18 EM 2006 84 Mait Patrail (Eistland) U20 EM 2008 83 Oli Mittun (Færeyjar) U18 EM 2022 80

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.