Það verða Ungverjaland og Svíþjóð sem mætast í úrslitaleik Evrópumóts U20 ára karla í handbolta sem fram fer í Rúmeníu. Það varð ljóst eftir undanúrslitaleikina sem fóru fram í gær þar sem bæði lið tryggðu sér sæti í úrslitunum með sannfærandi sigrum. Svíar höfðu betur gegn grönnum sínum frá Danmörku í markaleik, 38-35. Liam Hultberg fór fyrir sænska liðinu og skoraði tíu mörk en hann leikur með Ystads IF í heimalandinu. Ungverjar unnu síðan spútniklið mótsins, Slóveníu, 31-24. Mate Fazekas, leikmaður Pick Szeged, var markahæstur í sigurliði Ungverja með sjö mörk. Slóveninn Aljus Anzic, sem hefur farið á kostum á mótinu og verið einn skærasti leikmaður þess, var vel tekinn úr umferð og skoraði einungis fjögur mörk í tapinu. Á morgun ráðast síðan úrslitin á mótinu auk þess sem leikið verður um önnur sæti. Íslenska U20 ára landsliðið leikur þá sinn síðasta leik á mótinu þegar það mætir heimamönnum í Rúmeníu í leik um 13. sætið. Flautað verður til leiks klukkan 11:30 að íslenskum tíma. Úrslitaleikur mótsins hefst klukkan 16:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.