Íslendingafélag glímir við alvarlegan fjárhagsvanda
Nordhorn Lingen

Þýska handknattleiksfélagið HSG Nordhorn-Lingen sem leikur í þýsku 2.deildinni og hefur Íslendinginn Elmar Erlingsson innan sinna raða glímir um þessar mundir við alvarlegan fjárhagsvanda.

Félagið leggur þó áherslu á að staðan jafngildi ekki gjaldþroti samkvæmt þýskum lögum.

Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að fjárhagsstaðan sé áfram erfið þótt undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil sé hafinn. Stjórnendur vinna nú að því ásamt styrktaraðilum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á svæðinu að finna sjálfbæra langtímalausn.

Ástæða áhyggjanna er nýjasti ársreikningur félagsins fyrir tímabilið 1. júlí 2024 til 30. júní 2025. Þar kemur fram að uppsafnað tap umfram eigið fé hafi aukist úr tæplega 156 þúsund evrum í nærri 779 þúsund evrur.

Þótt reikningshaldið bendi til verulegrar yfirskuldsetningar segir félagið að það jafngildi ekki gjaldþroti í lagalegum skilningi. Stjórnendur telja rekstrargrundvöll félagsins enn traustan og vísa meðal annars til nægs lausafjár, nýs eigin fjár, rekstrarhorfa og sterkrar aðsóknar á heimaleiki.

Á síðasta tímabili sóttu alls 36.797 áhorfendur heimaleiki HSG Nordhorn-Lingen, sem gerir að meðaltali 2.165 áhorfendur í leik. Það var þriðja besta aðsókn í 2. þýsku deildinni, á eftir SG BBM Bietigheim og HC Elbflorenz.

HSG Nordhorn-Lingen er eitt þekktasta félag þýska handboltans. Félagið lék í efstu deild á árunum 1999 til 2009 og vann meðal annars silfurverðlaun í þýsku Bundesligunni árið 2002 auk EHF-bikarsins árið 2008. Ári síðar var félagið hins vegar dæmt niður um deild vegna gjaldþrotsmáls.

Félagið sneri aftur í efstu deild tímabilin 2019 til 2021 en hefur síðan leikið í 2. Bundesliga. Næstu vikur verður megináherslan lögð á að skýra fjárhagsstöðuna og tryggja framtíð félagsins en stjórnendur hafa boðað frekari upplýsingar um málið á næstunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top