Skipuleggjendur Ólympíuleikanna og Ólympíuleika fatlaðra í Los Angeles árið 2028 hafa formlega opnað fyrir umsóknir í sjálfboðaliðaverkefni leikanna. Frá og með 14. júlí 2026 geta áhugasamir alls staðar að úr heiminum skráð sig til þátttöku, en gert er ráð fyrir að um 60.000 sjálfboðaliðar komi að framkvæmd leikanna. Sjálfboðaliðarnir munu sinna fjölbreyttum verkefnum, allt frá því að taka á móti áhorfendum og íþróttafólki til sérhæfðari starfa á borð við tungumálaþjónustu og aðstoð við heilbrigðisþjónustu. Flest verkefnin verða á Los Angeles-svæðinu, en einnig verður þörf fyrir sjálfboðaliða á keppnisstöðum víðs vegar um Bandaríkin, meðal annars í Oklahoma City, New York, Columbus, Nashville, St. Louis, San Jose og San Diego. Verkefni sjálfboðaliðanna hefjast í mars 2028 þegar undirbúningur Ólympíuleikanna fer á fullt og standa fram í ágúst sama ár. Að þeim loknum tekur við tímabil Ólympíuleika fatlaðra sem stendur frá ágúst og fram í september. Við umsókn geta þátttakendur valið hvar þeir vilja helst starfa og jafnframt skráð sérstaka hæfni sem gæti nýst við ákveðin verkefni. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir handboltaáhugafólk til að bjóða fram krafta sín en hægt er að sækja um hér Skipuleggjendur leggja áherslu á að umsóknir verði að vera fylltar út til fulls til að koma til greina. Los Angeles verður gestgjafi Ólympíuleikanna í þriðja sinn, en borgin hélt leikana áður árin 1932 og 1984. Árið 2028 verða jafnframt fyrstu Ólympíumót fatlaðra sem fara fram í Los Angeles. Áætlað er að meira en 15.000 íþróttamenn taki þátt í leikunum árið 2028 og verða sjálfboðaliðarnir einn mikilvægasti hluti framkvæmdarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.