Svíar með fimm leikmenn í úrvalsliði EM U20 ára
EHF

EHF hefur birt opinbert úrvalslið Evrópumóts U20 ára landsliða karla sem fram fór í Rúmeníu og lauk um síðustu helgi.

Svíar eiga fimm fulltrúa í úrvalsliðinu en Ungverjar, Danir og Slóvenar eiga þar einnig fulltrúa. Liam Hultberg, leikmaður Ystads, var jafnframt valinn verðmætasti leikmaður mótsins (MVP).

Ungverjar sem fögnuðu sigri á mótinu eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Svíum sem réðst í framlengingu eiga tvo fulltrúa í úrvalsliðinu. Slóvenar unnu til bronsverðlauna eftir sigur á Dönum í leiknum um þriðja sætið.

Íslenska liðið hafnaði í 13. sæti á mótinu eftir sigur á Rúmeníu í lokaleik sínum á mótinu.

Hér má sjá úrvalslið mótsins:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top