Þýska úrvalsdeildarfélagið SG Flensburg-Handewitt verður án norska landsliðsmannsins Kent Robin Tönnesen um óákveðinn tíma eftir að hann greindist með ristil í andliti sem hefur einnig haft áhrif á augað. Undanfarna daga hafa verið uppi vangaveltur í þýskum fjölmiðlum um alvarleika veikindanna, meðal annars hvort sjón hans gæti verið í hættu. Félagið hefur þó nú tjáð sig um málið og segir mikilvægt að draga ekki ályktanir um framvindu sjúkdómsins. „Þau verstu tilfelli sem hafa verið nefnd eru ekki það sem við höfum greint frá,“ sagði talskona SG Flensburg-Handewitt. Hún staðfesti að auga Tönnesens væri undir áhrifum sjúkdómsins en að ekki væri hægt að segja nánar til um ástandið eða framvinduna að svo stöddu. Ristill í andliti sem hefur áhrif á augu er yfirleitt talið mjög alvarlegt og getur í sumum tilfellum leitt til fylgikvilla á borð við bólgur í hornhimnu eða sjónhimnu, gláku og í mjög sjaldgæfum tilvikum varanlegs sjóntaps. Slíkir fylgikvillar eru þó mögulegir almennt við sjúkdóminn og ekki hefur komið fram að Tönnesen glími við slíkt. Flensburg leggur áherslu á að heilsa leikmannsins sé í algjörum forgangi og vill ekki tjá sig frekar um bataferlið á þessu stigi. Enn er óljóst hvenær Tönnesen verður klár til að snúa aftur á handboltavöllinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.