Þýskur handbolti syrgir fyrrum dómara
Sportmix

Þýska handknattleikssambandið (DHB) hefur greint frá andláti fyrrverandi dómarans Matthias Brauer, sem lést 58 ára að aldri eftir erfið veikindi.

Brauer hóf dómgæslu árið 1985 og var um árabil í fremstu röð þýskra handknattleiksdómara. Ásamt dómarafélaga sínum, Kay Holm, dæmdi hann yfir 830 leiki á vegum DHB áður en þeir lögðu flautuna á hilluna árið 2017.

Eftir að virkum dómarferli lauk hélt Brauer áfram störfum fyrir þýskan handbolta sem eftirlitsmaður í Bundesligunni og leiðbeinandi fyrir unga dómara, meðal annars í 3. deildinni.

Í tilkynningu DHB segir að með Brauer sé horfinn mikill leiðtogi og áhrifamaður innan þýskrar dómgæslu.

„Alltof ótímabært fráfall Matthias Brauer er mikill missir á allan hátt. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans, aðstandendum og vinum á þessum erfiða tíma,“ sagði Jutta Ehrmann, yfirmaður dómaramála hjá DHB.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top