Danska úrvalsdeildarfélagið Skjern hefur fengið til liðs við sig sænsku markmannsgoðsögnina Dan Beutler sem nýjan markmannsþjálfara. Danska félagið greindi frá ráðningunni á Facebook-síðu sinni en Beutler hefur nú þegar hafið störf hjá danska félaginu. Beutler er 48 ára gamall og á að baki farsælan feril sem markvörður. Hann lék meðal annars í þýsku Bundesligunni með SG Flensburg-Handewitt og HSV Hamburg og var einnig um árabil í sænska landsliðinu. Svíinn hefur því mikla reynslu úr hæsta gæðaflokki handboltans og mun nú miðla þekkingu sinni til markvarða Skjern.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.