Í gæsluvarðhaldi sakaður um ofbeldi og nauðgunarbrot
Julien Kammerer / AFP

Franski handknattleiksmaðurinn Théophile Caussé, leikmaður Cesson-Rennes, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 4. júlí grunaður um alvarleg ofbeldis- og kynferðisbrot gegn sambýliskonu sinni.

Samkvæmt franska miðlinum L'Équipe, sem vísar til Ouest-France, er hinn 33 ára gamli hægri hornamaður sakaður um ofbeldi, nauðgun og tilraun til nauðgunar gegn sambýliskonu sinni, sem er jafnframt móðir tveggja barna þeirra.

Málið kom upp þegar vinir konunnar höfðu samband við lögreglu 28. júní og greindu frá meintum líkamsárásum sem áttu að hafa átt sér stað daginn áður. Þá var einnig sagt frá ítrekuðu ofbeldi, meðal annars barsmíðum, kyrkingum og þvinguðum kynferðislegum athöfnum.

Konan lagði sjálf ekki fram kæru í upphafi og sagði fyrst við lögreglu að hún þyrfti ekki á aðstoð að halda. Síðar greindi hún þó frá meintu heimilisofbeldi sem hún segir hafa staðið yfir frá árinu 2023, auk meintrar tilraunar til nauðgunar. Hún hefur hins vegar hafnað því að um fullframið nauðgunarbrot hafi verið að ræða. Caussé neitar öllum ásökunum á hendur sér og hefur farið fram á að verða látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Búist er við að ákvörðun um þá beiðni liggi fyrir á föstudag.

Caussé hefur átt langan feril í efstu deild franska handboltans og leikið með liðum á borð við Dunkerque, Montpellier og Ivry áður en hann gekk til liðs við Cesson-Rennes árið 2021. Hann var hluti af liði Montpellier sem varð Evrópumeistari þegar félagið vann Meistaradeild Evrópu árið 2018.

Málið er nú til rannsóknar hjá frönskum yfirvöldum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top