Daninn, Frederik Bjerre gekk í raðir pólska stórliðsins Wisła Płock frá GOG í sumar. Danski landsliðsmaðurinn hefur miklar væntingar fyrir komandi tímabil. Bjerre sló í gegn með GOG á síðustu leiktíð en nú er komið að nýjum kafla á hans ferli og það í Póllandi. Wisła Płock birti myndband frá undirbúningstímabilinu á Instagram þar sem Bjerre ræðir fyrstu daga sína hjá nýja félaginu. „Mér finnst þetta hafa verið mjög góð byrjun. Ég er virkilega ánægður með að vera kominn inn í klefann og hafa hitt alla leikmennina og þjálfarateymið. Þetta er mjög góður hópur sem auðvelt hefur verið að verða hluti af og eiga samskipti við,“ sagði Bjerre. Danski leikmaðurinn er einnig ánægður með fyrstu æfingarnar, þrátt fyrir að þurfa að venjast nýjum aðferðum undir spænsku þjálfarateymi. „Æfingarnar hafa líka gengið vel. Bæði hlaupaæfingar, styrktaræfingar og handboltaæfingar hafa verið mjög góðar og það er frábært að vera kominn af stað. Það eru auðvitað smávægilegar breytingar og aðeins öðruvísi leikstíll með spænsku þjálfarateymi, en mér líkar það vel og ég hlakka til að sjá hvað bíður okkar,“ sagði hann. Bjerre fer ekki í grafgötur með að markmiðin séu há í Meistaradeild Evrópu. Wisła Płock ætlar sér að enda í einu af tveimur efstu sætum riðilsins og tryggja sér þar með áfram í keppninni en Meistaradeild Evrópu er leikinn með breyttu sniði frá síðustu árum. Leikið er í fjögurra liða riðlum þar sem tvö efstu lið hvers riðils komast áfram. „Það er aldrei auðvelt að spila í Meistaradeildinni, en mér finnst við eiga góða möguleika. Við ætlum að reyna að enda í einu af tveimur efstu sætunum og vinna riðilinn svo við komumst áfram,“ sagði Bjerre. Danski landsliðsmaðurinn hefur þegar kynnt sér stórleikina gegn erkifjendunum frá Kielce, sem í Póllandi eru gjarnan kallaðir „heilaga stríðið“. Hann hlakkar mikið til að fá sjálfur að taka þátt í þessum leikjum. „Ég hef auðvitað horft á leikina frá bæði úrslitakeppninni og Ofurbikarnum á síðasta ári. Það var ótrúleg stemning og mig langar virkilega að leika stórt hlutverk í þessum leikjum. Ég hlakka mikið til þess,“ sagði hann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.