Hlakkar til að ganga inn í „Helvíti norðursins“
FEDERICO GAMBARINI / AFP

Emil Bergholt er nýr leikmaður SG Flensburg-Handewitt og var meðal annars fenginn til að fylla í skarð Johannes Golla á línunni en Daninn verður að berjast um mínútur á línunni við landsliðsmanninn, Arnar Frey Arnarsson sem einnig gekk í raðir félagsins frá MT Melsungen í sumar.

Danski línumaðurinn er meðvitaður um að það er stórt hlutverk að taka við af Golla, sem hefur verið einn af lykilmönnum Flensburg undanfarin ár. Bergholt ætlar þó ekki að reyna að verða næsti Johannes Golla heldur leggja áherslu á sína eigin styrkleika.

„Það eru auðvitað stór skór að fylla, en ég er Emil og ég vil leggja mitt af mörkum með mínum styrkleikum,“ sagði Bergholt í samtali við handball-world.news.

Hinn 28 ára gamli Bergholt sem gekk í raðir Flensburg frá Skjern hefur aldrei áður leikið gegn Flensburg en hann kemur þó ekki inn í algjörlega ókunnan leikmannahóp. Hann þekkir nokkra danska leikmenn liðsins úr landsliðinu og þekkir einnig markvörðinn Benjamin Burić.

Burić kom oft í heimsókn til tvíburabróður síns, Senjamin, þegar hann lék með Skjern og þekkir Bergholt því frá þeim tíma.

Þrátt fyrir að dönsku tengslin geti auðveldað honum fyrstu skrefin í Flensburg vill Bergholt ekki einangra sig í danska samfélaginu. Hann reynir því að tala eins mikla þýsku og mögulegt er til að komast sem hraðast inn í tungumálið og menninguna, þó nokkur ár séu síðan hann lærði þýsku síðast í skóla.

Bergholt hefur einnig þegar upplifað heimavöll Flensburg, þó ekki sem leikmaður. Fyrir 13 árum sat hann í stúkunni á heimaleik félagsins þar sem leikmenn á borð við Thomas Mogensen, Lasse Svan, Tobias Karlsson og Michael Knudsen voru meðal þeirra sem prýddu liðið.

Í nóvember fylgdist hann einnig með leik Flensburg gegn Hamburg í þeirri íþróttahöll sem nú er orðinn hans nýi heimavöllur. Nú er komið að því að upplifa stemninguna innan vallar.

Bergholt hlakkar til að ganga inn í „Helvíti norðursins“ sem leikmaður Flensburg. Fyrsti stóri heimaleikurinn verður að öllum líkindum gegn Eisenach og þá fær hann loks að kynnast þeirri einstöku umgjörð sem hann hefur áður aðeins upplifað úr stúkunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top