Danska liðið Skanderborg AGF stendur á tímamótum fyrir komandi keppnistímabil en félagið tekur í fyrsta sinn þátt í Meistaradeild Evrópu eftir framúrskarandi síðasta tímabil. Skanderborg AGF leikur í riðli með þremur stórliðum Evrópu, Barcelona, Dinamo Búkarest og Montpellier og bíður því liðsins krefjandi verkefni strax í riðlakeppninni. Þrátt fyrir erfitt hlutskipti segist Nick Rasmussen, þjálfari liðsins, ætla sér að nýta tækifærið til fulls og vonast til að liðið skilji eftir sig góð spor í keppninni. „Við viljum sjá hvort okkur takist að standa okkur virkilega vel í Meistaradeildinni. Þetta er algjörlega ný reynsla fyrir félagið og marga leikmenn líka. Þetta verður spennandi áskorun og við viljum sjá hvort okkur takist að eiga virkilega flott Evrópuævintýri. Við ætlum okkur að standa okkur vel,“ sagði Rasmussen í samtali við TV 2 Sport. Með Skanderborg leikur Kristján Örn Kristjánsson, Donni en hann gekk í raðir félagsins fyrir síðustu leiktíð og er á leið inn í sitt annað tímabil með félaginu. Fyrir Skanderborg AGF er þátttakan sögulegur áfangi og verður fróðlegt að sjá hvernig liðið tekst á við stærstu svið evrópsks félagsliðahandbolta á sínu fyrsta tímabili í keppninni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.