Nikolaj Jacobsen hefur stýrt danska karlalandsliðinu frá árinu 2017 og á þeim tíma leitt liðið til ótrúlegs árangurs. Undir hans stjórn hefur Danmörk unnið fjóra heimsmeistaratitla, Evrópumeistaratitil og Ólympíugull. Þrátt fyrir öll afrekin segir Jacobsen að eitt við starfið sé mun erfiðara en margir geri sér grein fyrir. Í viðtali við Fyns Amts Avis segir danski landsliðsþjálfarinn að erfiðustu stundirnar komi þegar velja þarf lokahópinn fyrir stórmót. „Það eru valin fyrir lokamótin. Ég kveiki drauma hjá sumum en slökkvi líka drauma annarra. Það er hluti af starfinu, en það er erfitt að þurfa að segja ungum leikmanni að það hafi ekki verið pláss fyrir hann að þessu sinni.“ Jacobsen bendir á að gríðarleg breidd í dönskum handbolta geri verkefnið enn erfiðara, enda séu margir leikmenn sem eigi fullt erindi í landsliðið. Samningur Jacobsens sem landsliðsþjálfari Danmerkur gildir til ársins 2030 og því bíða hans enn fjölmargar krefjandi ákvarðanir á komandi árum. Þrátt fyrir að hafa stýrt einu sigursælasta landsliði handboltasögunnar segir hann að það sé aldrei auðvelt að segja metnaðarfullum leikmönnum að draumur þeirra um sæti í lokahópnum verði að bíða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.