Ég bjóst við að vera áfram hjá Kiel
Bo Amstrup / AFP)

Danski landsliðsmaðurinn Magnus Landin segir að brotthvarf hans frá THW Kiel hafi ekki farið eins og hann hafði gert ráð fyrir. Vinstri hornamaðurinn bjóst við að framlengja samning sinn við þýska stórliðið en endaði þess í stað hjá Álaborg Handbold.

Í samtali við Nordjyske.dk segir Landin að ferlið hafi tekið óvænta stefnu.

„Þetta var svolítið skrýtið ferli miðað við síðast þegar ég var hjá Kiel. Ég bjóst við því að vera áfram þar og aðrir höfðu einnig gefið það til kynna. Síðan gerðust ákveðnir hlutir sem breyttu því,“ sagði Landin.

Hann vildi þó ekki fara nánar út í hvað gerðist.

„Þetta er ferli sem ég vil ekki tjá mig of mikið um, en það hefði mátt standa öðruvísi að því.“

Þegar ljóst var að framtíð hans yrði ekki hjá Kiel fór allt hratt af stað og nokkur félög sýndu danska landsliðsmanninum áhuga.

Landin segir þó að Álaborg hafi gefið sér bestu tilfinninguna og því hafi valið fallið á danska stórliðið.

Með félagaskiptunum snýr hinn þrítugi hornamaður aftur í danskan félagsliðahandbolta eftir sjö tímabil í þýsku Bundesligunni.

Hjá Álaborg fær Landin tækifæri til að spila aftur í Meistaradeild Evrópu og verður jafnframt samherji eldri bróður síns, markvarðarins Niklas Landin.

Á fimmtudaginn mætti Magnus Landin á sína fyrstu æfingu með Álaborg, þar sem undirbúningur liðsins fyrir tímabilið 2026/27 hófst af fullum krafti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top