Uppselt á fyrsta heimaleik Jim Gottfridsson með uppeldisfélaginu í 15 ár
IFK Ystad

Það verður uppselt í Ystad Arena föstudaginn 21. ágúst þegar IFK Ystad tekur á móti ríkjandi meisturum og Íslendingaliðinu, IFK Kristianstad í sænska bikarnum.

Það sem gerir leikinn sérstaklega áhugaverðan er að um verður að ræða fyrsta heimaleik sænska landsliðsmannsins Jim Gottfridsson með uppeldisfélagi sínu í heil 15 ár.

Gottfridsson hóf feril sinn hjá IFK Ystad og lék með félaginu tímabilið 2010-2011. Hann gekk síðan í raðir IF Ystads og lék þar tvö tímabil áður en hann samdi við þýska stórliðið SG Flensburg-Handewitt árið 2013. Sænski landsliðsmaðurinn lék með SG Flensburg-Handewitt allt þar til síðasta sumar er hann gekk í raðir ungverska stórliðsins Pick Szeged. Dvöl hans þar var þó styttri en ráð var gert fyrir og rifti félagið samningi hans við félagið fyrr á þessu ári. Jim Gottfridsson ákvað óvænt að snúa aftur til uppeldisfélagsins í sumar.

Gottfridsson hefur átt afar farsælan feril hjá Flensburg og er einn af þekktustu sænsku handknattleiksmönnum samtímans. Hann hefur meðal annars orðið þýskur meistari og unnið þýska bikarinn með félaginu, auk þess að vera í lykilhlutverki með sænska landsliðinu. Hann varð Evrópumeistari með Svíþjóð árið 2022 og hefur um árabil verið einn af leiðtogum liðsins.

Nú snýr hann hins vegar aftur á heimaslóðir og mun leika með IFK Ystad, sem leikur í sænsku 2. deildinni. Fyrsti heimaleikurinn verður hins vegar af stærri gerðinni. Mótherjarnir verða IFK Kristianstad, ríkjandi sigurvegarar sænsku deildarinnar, sænsku úrslitakeppninnar og sænska bikarsins.

Íslendingar verða einnig áberandi í leiknum en þrír íslenskir leikmenn leika með Kristianstad. Það eru þeir Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason. Andri og Baldur gengu báðir í raðir félagsins í sumar og eru því nýir leikmenn í liðinu. Þá tók Gunnar Steinn Jónsson einnig við starfi aðstoðarþjálfara Kristianstad í sumar.

Miðarnir á leikinn eru uppseldir og því má búast við gríðarlegri stemningu í Ystad Arena þegar Gottfridsson mætir aftur fyrir framan stuðningsmenn uppeldisfélags síns í fyrsta sinn síðan árið 2011.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top