Spá Reyni Þór stóru tímabili í Bundesligunni
(Kristinn Steinn Traustason)

Nýtt tímabil í þýsku Bundesligunni er handan við hornið og á hverju ári koma fram leikmenn sem taka stórt skref og stimpla sig inn meðal þeirra bestu.

Handball-world hefur tekið saman fimm leikmenn sem gætu átt sitt stóra tímabil í Bundesligunni 2026/27. Þar á meðal er íslenski landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson hjá MT Melsungen.

Nikola Roganovic – VfL Gummersbach

Hinn tvítugi sænski landsliðsmaður er talinn eitt mesta efni heims og gekk til liðs við VfL Gummersbach í sumar. Bundesliga verður þó ný áskorun þar sem erfiðir leikir bíða nánast í hverri einustu viku.

Roganovic hefur þegar gefið góð fyrirheit í æfingaleikjum Gummersbach og virðist aðlögun hans að nýja liðinu ganga vel.

Niklas Theiß – HSG Wetzlar

Hinn 23 ára gamli Theiß þurfti á síðasta tímabili að berjast við Stefan Cavor um mínútur í hægri skyttustöðunni hjá HSG Wetzlar. Eftir því sem leið á tímabilið fékk hann þó stærra hlutverk.

Theiß lauk tímabilinu með 76 mörk og 62 stoðsendingar í 29 leikjum og virðist nú ætla að hefja tímabilið sem fyrsti kostur Wetzlar í stöðunni.

Reynir Þór Stefánsson – MT Melsungen

Reynir gekk til liðs við MT Melsungen sumarið 2025 en glímdi þá við gollurshússbólgu og þurfti að bíða í tæpa fimm mánuði eftir fyrsta leik sínum fyrir félagið.

Hann fékk því aðeins 318 mínútur í Bundesligunni á síðasta tímabili, lék 18 leiki og skoraði 35 mörk auk þess að gefa átta stoðsendingar.

Reynir, sem varð 21 árs á miðvikudaginn, fær nú í fyrsta skipti heilt ungirbúningstímabil með Melsungen og þátttaka liðsins í Meistaradeildinni ætti jafnframt að skapa fleiri tækifæri fyrir hann.

Samkeppnin í skyttustöðunum hjá Melsungen verður mikil en Reynir hefur þegar sýnt að hann gæti verið einn þeirra leikmanna sem taka stórt skref á komandi tímabili.

Luca Sigrist – MT Melsungen

Reynir er ekki eina unga efnið hjá Melsungen sem verður spennandi að fylgjast með.

Svisslendingurinn Luca Sigrist er einnig fæddur árið 2005 og er að hefja sitt fyrsta tímabil í Bundesligunni eftir komuna frá svissneska meistaraliðinu HC Kriens-Luzern.

Ef meiðslavandræði Erik Balenciaga halda áfram gæti hinn tvítugi Sigrist fengið stærra hlutverk en upphaflega var gert ráð fyrir.

Landsliðsfélagi hans Felix Aellen sýndi á síðasta tímabili hversu hratt svissneskur leikmaður getur sett mark sitt á Bundesliguna en hann skoraði 189 mörk og gaf 78 stoðsendingar fyrir ThSV Eisenach.

Levin Wanner – TBV Lemgo Lippe

Annar Svisslendingur, Levin Wanner, er einnig á listanum.

Hægri hornamaðurinn vakti athygli með BSV Bern í Evrópudeildinni á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 62 mörk. Þar af komu 29 í aðeins fjórum leikjum gegn THW Kiel og Montpellier.

Wanner, sem er 25 ára, er nú kominn til TBV Lemgo Lippe þar sem aðstæður gætu hentað honum vel. Liðið hefur haldið miklum stöðugleika undanfarin ár og Florian Kehrmann hefur sýnt að hann getur hjálpað leikmönnum að taka næsta skref á ferlinum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top