Haukar unnu öruggan sigur á Val, 36:28, í Meistarakeppni HSÍ í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í hálfleik var 15:12 og voru Valskonur inni í leiknum þar til í lokin þegar Haukar stungu af og sigldu sannfærandi sigri í höfn en Haukum er spáð öðru sæti Olís deildar kvenna í vetur. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var óstöðvandi í kvöld. og skoraði 15 mörk. Embla Steindórsdóttir kom næst á eftir Jóhönnu með fimm mörk. Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði níu mörk fyrir Val og Ásdís Þóra Ágústsdóttir sex.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.