Kastening með „flókin“ meiðsli
Marco Wolf / AFP

Timo Kastening, fyrirliði MT Melsungen og þýskur landsliðsmaður, gæti verið frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla á hæl.

Kastening meiddist í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Kiel í lok maí og gekkst undir aðgerð í byrjun júlí. Hann hefur síðan verið í endurhæfingu og missti af öllu undirbúningstímabili Melsungen.

„Mér líður heilt yfir mjög vel. Ég vinn hörðum höndum í endurhæfingunni og reyni að taka framförum á hverjum degi,“ sagði Kastening við Dyn.

Hann segir hins vegar erfitt að segja til um hvenær hann geti snúið aftur.

„Þetta eru flókin meiðsli sem þurfa tíma til að gróa. Ég vonast til að geta snúið aftur á völlinn á þessu almanaksári en næstu vikur munu sýna hversu hratt þetta gengur,“ sagði Kastening.

Kastening er 31 árs hægri hornamaður og hefur leikið með Melsungen frá árinu 2020. Reynir Þór Stefánsson er liðsfélagi Kastening hjá Melsungen.

Melsungen heimsækir Gummersbach í dag í 4.umferð þýsku Bundesligunnar klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top