Danska stórliðið Álaborg virðist vera farið að huga vel að framtíðinni en félagið er sagt eiga í viðræðum við tvo af eftirsóttustu leikstjórnendum heims, Felix Claar leikmann Magdeburg og Elias Ellefsen á Skipagøtu leikmann THW Kiel. Danska félagaskiptasíðan Rygtebørs greinir frá því að Álaborg eigi í viðræðum við bæði Claar og Elias. Báðir eru þó sagðir vera á óskalista fleiri stórliða og því ljóst að samkeppnin um undirskrift þeirra gæti orðið hörð. Færeyingurinn Elias er samningsbundinn THW Kiel til ársins 2027 en Svíinn Claar er með samning við þýska stórliðið SC Magdeburg til ársins 2028. Þá er Álaborg einnig sagt langt komið í viðræðum við danska landsliðsmanninn Magnus Saugstrup um endurkomu til félagsins. Saugstrup lék með Aalborg áður en hann gekk til liðs við Magdeburg árið 2021 og hefur síðan skipað sér í hóp bestu línumanna heims. Sögusagnir um mögulega endurkomu hans til Álaborgar hafa verið á kreiki undanfarna mánuði, en hann er samningsbundinn Magdeburg til ársins 2029. Á sama tíma er þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr sagður líklegur til að yfirgefa Álaborg. Þjóðverjinn gekk til liðs við félagið frá Rhein-Neckar Löwen fyrir síðasta tímabil og er með samning til ársins 2028. Knorr hefur raunar byrjað yfirstandandi tímabil af krafti og skoraði meðal annars fimm mörk og gaf sjö stoðsendingar í 33-30 sigri liðsins á Skjern um síðustu helgi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.