Einar Jónsson þjálfari Fram var óánægður með leik sinna manna eftir tap þeirra gegn Stjörnunni í kvöld, 37-29. Einar var óspar á orðin í viðtali sem Handkastið tók við hann eftir leik og sagði að leikur sinna manna hefði verið það lélegasta sem hann hefði upplifað síðan hann tók við sem þjálfari Fram. "Skot, sendingar, hlaup til baka, vörn og markvarsla, er ég þá ekki búinn að telja nokkurnveginn allt upp sem skiptir máli í handbolta? Ég held að hausinn á mönnum hafi verið lengst uppi í rassgatinu á mönnum" Hann segir að ákveðnar viðvörunarbjöllur hafi kviknað í síðari hálfleik gegn ÍBV í síðasta leik og það hafi haldið áfram í leik liðsins í kvöld og liðið hafi einfaldlega ekkert átt skilið. Allt viðtalið við Einar má sjá hér að neðan

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.