Selfyssingar fara með 2 stig yfir Hellisheiðina
Raggi Óla

Í kvöld mættust Hvíti Riddarinn og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Myntkaup höllinni.

Selfyssingarnir byrjuðu gríðarlega sterkt og komust í 4-0. Þeir bættu bara enn frekar í og eftir 10 mínútna leik var staðan 3-10. Eftir 20 mínútna leik var staðan svo orðin 5-14. Liðsmenn Hvíta Riddarans ekki að hitta á daginn sinn.

Hálfleikstölur voru svo 11-18 fyrir Selfyssingana.

Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Yfirburðir Selfyssinga þónokkrir. Komust þeir m.a í 19-29. Hvíti Riddarinn náðu svo að klóra aðeins í bakkann undir lokin og urðu lokatölur 27-32.

Hjá Selfossi var Dagur Rafn Gíslason markahæstur með 11 mörk. Garðar Freyr og Egill Eyvindur vörðu samtals 16 skot.

Hjá Hvíta Riddaranum var Brynjar Búi Davíðsson markahæstur með 9 mörk. Eyþór og Bergvin vörðu samtals 21 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top