Styrmir Máni ((Raggi Óla)
HK 2 fékk Fram 2 í heimsókn í Kórinn í kvöld í Grill 66 deild karla. Fram voru yfir 12-15 í hálfleik og sigruðu 27-31. Var sigur þeirra Framara sanngjarn og tiltölulega sannfærandi. Eru þeir komnir á toppinn í Grill 66 deildinni og ljóst að gott barna- og unglingastarf þeirra síðustu ár er að skila sér í fjölda ungra og efnilegra leikmanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.