Grill66 karla: Hörður með sigur á Selfossi
Hörður Facebook)

Lokaleikur 6.umferðar Grill 66 deildinnar fór fram á Selfossi nú undir kvöld þar sem Harðverjar komu í heimsókn.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en í stöðunni 10-11 skoruðu Harðverjar 7 mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-18.

Selfyssingar náðu aðeins að klára í bakkann fyrir hálfleik en voru þó 5 mörkum undir 17-22.

Selfyssingar byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og náðu að minnka muninn í 2 mörk 23-25 en þá gáfu Harðverjar aftur í og komu muninum aftur upp í 6 mörk.

Leiknum lauk svo með þægilegum 4 marka sigri Ísfirðinga 35-39 sem komu sér upp í 4.sæti Grill 66 deildarinnar. Selfyssingar sitja í 6.sæti deildinnar.

Markahæsti leikmaður Selfoss í dag var Hákon Garri Gestsson en hann skoraði hvorki meira né minna en 13 mörk. Hjá Ísfirðingum var Jose Esteves Lopes Neto markahæstur með 9 mörk og Endijs Kusners kom næstur með 8.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top