Í kvöld mættust Grótta og Víkingur í Hertz höllinni í Grill 66 deild karla. Sannkallaður toppbaráttuslagur eins og mikið hefur verið rætt og ritað um.
Víkingar mættu mikið mun ákveðnari til leiks og voru fastir fyrir í byrjun leiks. Þeir byrjuðu mun betur og voru t.a.m komnir í 4-7 eftir 10 mínútna leik. Áfram héldu þeir í góðum takt og eftir 15 mínútna leik var staðan orðin 7-11. Víkingar gáfu ekkert og héldu þessum markamun að mestu í 3-5 mörkum í fyrri hálfleik. Fóru þeir inn til búningsherbergja með 3 marka forskot og var staðan 15-18 þegar var flautað til hálfleiks.
Í seinni hálfleik héldu Víkingar áfram að hafa yfirhöndina og áfram hélst munurinn í 4-5 mörkum. Það var ekki fyrr en þegar ca. 10 mínútur lifðu leiks að það fór að gefa á bátinn hjá þeim. Gróttu menn stigu þá allverulega upp og áttu góðan lokakafla. Antoine Óskar Pantano jafnaði metin í 29-29 þegar 3 mínútur voru eftir. Þorgeir Bjarki Davíðsson kom þeim síðan yfir í 30-29 þegar 2 mínútur voru eftir. Halldór Ingi Óskarsson línumaður Víkinga jafnaði metin í 30-30 þegar 1 og ein hálf mínúta var eftir af leiknum. Í blálokin töpuðu svo Víkingar boltanum þegar 5 sekúndur voru eftir af leiknum en Bessi Teitsson skoraði rétt eftir að flautan gall og því markið ekki tekið gilt. Jafntefli niðurstaðan í æsispennandi leik.
Hjá Víking voru Ásgeir Snær Vignisson og Akureyringurinn Ísak Óli Eggertsson markahæstir með 7 mörk. Rökkvi Steinunnarson varði 10 skot.
Hjá Gróttu var Þorgeir Bjarki Davíðsson markahæstur með 6 mörk. Hannes Pétur og Andri Snær vörðu samtals 7 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.