Stefán Freyr og Endijs lögðu grunninn að sigri Harðverja fyrir vestan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stefán Freyr Jónsson (Eyjólfur Garðarsson)

Í dag mættust Hörður og HK 2 á Ísafirði í Grill 66 deild karla.

Harðverjar höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. HK-ingar voru þó aldrei langt frá og nörtuðu oft í hælana á þeim. Eftir korter var staðan 7-5 fyrir Harðverja. Hálfleikstölur voru svo 15-11 fyrir heimamenn.

Í seinni hálfleik var hélst munurinn lengst af í 3-5 mörkum. Er 4 mínútur lifðu leiks náðu HK-ingar að jafna metin í 22-22 og fór væntanlega um Ísfirðinga í stúkunni. En Harðverjar voru ákveðnari og sterkari á lokamínútum leiksins og náðu að sigla heim sigri. Lokatölur 26-23.

Hjá Herði var Stefán Freyr frábær í rammanum með 14 skot varin. Endijs Kusners var síðan einnig mjög öflugur með 11 mörk.

Hjá HK var Kristófer Stefánsson með 6 mörk. Markvarslan hjá HK skilaði þeim 10 boltum vörðum.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top