Jóhann Reynir Gunnlaugsson - Víkingur (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í kvöld mættust Víkingar og ÍH í Virkinu í Safamýri í Grill 66 deild karla.
Fyrirfram var búist við heimasigri og varð það raunin. Eftir korter í fyrri hálfleik var staðan 10-7 fyrir heimamenn. Gáfu Víkingar enn meira í og náðu mest 8 marka forskoti í fyrri hálfleik. Hálfleikstölur urðu síðan 21-13.
Í seinni hálfleik náði ÍH mest að minnka muninn niður í 5 mörk. Nær komust þeir einfaldlega ekki með Brynjar Narfa Arndal fremstan í flokki. Lokatölur leiksins urðu 39-28.
Víkingar eru því áfram í toppsætinu og eru í bílstjórasætinu um að sigra deildina þegar það eru enn nokkrar umferðir eftir af deildinni.
Hjá ÍH var Brynjar Narfi Arndal langatkvæðamestur með 13 mörk. Kristján Rafn varði 7 bolta.
Hjá Víking var Sigurður Páll Matthíasson markahæstur með 10 mörk. Daði Bergmann klukkaði 5 bolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.