Sigurður Páll Matthíasson (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í kvöld mættust Fram 2 og Víkingur í Úlfarsárdal í Grill 66 deild karla.
Víkingar voru mun aðgangsharðari í upphafi leiks og eftir korter var staðan 4-7. Þeir voru ekkert á þeim buxunum að slaka á og keyrðu áfram á fullu gasi út fyrri hálfleikinn. Hálfleikstölur voru 11-17 fyrir gestina úr Safamýri.
Í seinni hálfleik gáfust Framarar fljótt upp og voru aldrei nálægt því að veita Víkingunum einhverja skráveifu. Mest náðu Víkingar 12 marka forskoti. Lokatölur leiksins urðu síðan 21-31 fyrir Víking. Svo sannarlega þægilegur og öruggur sigur hjá Víkingum sem færast alltaf skrefi nær lokatakmarkinu.
Hjá Víking var Akureyringurinn Ísak Óli Eggertsson markahæstur með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 10 boltum vörðum.
Hjá Fram 2 var Gabríel Jónsson Kvaran og Kristófer Gíslason báðir með 5 mörk. Garpur Druzin varði 7 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.