Haukar2 (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í kvöld mættust ÍH og Haukar 2 í Krikanum í Grill 66 deild karla.
Fyrri hálfleikur var sveiflukenndur og Hafnarfjarðarliðin skiptust á að hafa forskotið frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Hálfleikstölur voru síðan 17-16 fyrir ÍH-inga.
Í seinni hálfleik var jafnræðið áfram ríkjandi fyrsta korterið. Svo fóru Haukamenn að vaxa ásmegin og náðu að komast í bílstjórasætið. Fór það svo að lokum að þeir sigruðu þennan nágrannaslag í Krikanum og urðu lokatölur 29-32.
Hjá Haukum 2 var Ari Dignus með 13 bolta varða. Sigurður Sigurjónsson var markahæstur með 8 mörk.
Hjá ÍH var Brynjar Narfi Arndal markahæstur með 8 mörk. Kristján Rafn varði 9 bolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.