Gunnar Hrafn Pálsson - Grótta (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust Grótta og Valur 2 í Hertz höllinni í Grill 66 deild karla.
Fyrri hálfleikurinn var jafn, skemmtilegur og spennandi. Heimamenn í Gróttu voru þó alltaf skrefi á undan. Sér í lagi undir lok fyrri hálfleiks. Þeir fóru inn til búningsherbergja með 4 marka forskot. 17-13.
Í seinni hálfleik saumuðu Valsarar allverulega að heimamönnum í Gróttu. Eftir rúmt korter þá náðu þeir að jafna leikinn í 24-24 með marki Bjarka Snorrasonar. Eftir það þá tóku heimamenn vel við sér og voru betri síðustu 10 mínúturnar. Að lokum uppskáru þeir sigur, 33-30. Mikilvægur sigur og stigasöfnun hjá þeim í toppbaráttunni í deildinni.
Hjá Gróttu var Hannes Pétur Hauksson með 14 bolta varða. Þorgeir Bjarki Davíðsson setti 6 mörk og var markahæstur.
Hjá Val 2 var Logi Finnsson markahæstur með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 12 boltum vörðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.