Hörður Ísafjörður (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust Hörður og Selfoss 2 á Ísafirði í Grill 66 deild karla.
Selfyssingar mættu gríðarlega ákveðnir til leiks á Torfnesi fyrir vestan í kvöld. Voru þeir miklu betri í fyrri hálfleik og svoleiðis keyrðu í bakið á heimamönnum. Eftir korter var staðan 7-10 og þeir slökuðu ekkert á. Hálfleikstölur voru 14-20.
Harðar menn mættu sterkari til leiks í seinni hálfleik. Reyndu þeir hvað sem þeir gátu til að jafna leikinn en náðu aðeins að minnka muninn niður í 2 mörk þegar rúmar 7 mínútur lifðu leiks. Fór það svo að Selfyssingar kláruðu leikinn sannfærandi og unnu 27-33. Þeir einfaldlega vildu þetta miklu meira í kvöld. Frábær ferð hjá þeim vestur á firði.
Hjá Herði var Endijs Kusners markahæstur með 11 mörk. Markvarslan var ekki góð í kvöld hjá Harðverjum og aðeins 5 varðir boltar.
Hjá Selfoss 2 var Aron Leo Guðmundsson markahæstur með 13 mörk. Markvarslan skilaði þeim 11 boltum vörðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.