Fjölnismenn náðu í 2 stig á eyjunni fögru
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Victor Máni Matthíasson (Þorgils Garðar Gunnþórsson)

Í dag mættust HBH og Fjölnir í Vestmannaeyjum í Grill 66 deild karla.

Fjölnismenn tóku strax öll völdin í leiknum og eftir korter var staðan 7-10 fyrir gestina. Áfram mölluðu þeir inn mörkum og náðu að halda Eyjapeyjum vel frá sér. Hálfleikstölur voru 14-18.

Í seinni hálfleik bættu gestirnir bara enn meira í og gáfu ekki tommu eftir. Mest náðu þeir 12 marka forskoti. Lokatölur urðu 27-39 fyrir Fjölnismönnum. Mjög góð og vel heppnuð ferð þeirra til Eyja. Þeir halda áfram að safna stigum.

Hjá HBH var Andri Magnússon markahæstur með 7 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum.

Hjá Fjölni var Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson markahæstur með 10 mörk. Markvarslan skilaði þeim 4 boltum.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top