Daníel Örn Guðmundsson ((Baldur Þorgilsson)
Í dag mættust ÍH og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Hlíðarenda.
Byrjun leiksins var tiltölulega jöfn. Lítið bar af á milli liðanna. Staðan var 8-7 fyrir Val eftir korter. Fljótlega eftir það kom mikið og gott áhlaup frá ÍH og fóru þeir með eins marks forskot inn í hálfleikinn. Staðan var 17-18 í hálfleik.
Í seinni hálfleik var ÍH mun betri aðilinn fyrsta korterið og komust mest 3 mörkum yfir. En eftir að Valsarar jöfnuðu leikinn í 25-25 þegar 10 mínútur voru eftir að þá leit Valur aldrei um öxl. Kláruðu þeir leikinn vel og örugglega. Lokatölur 33-30 fyrir Val 2.
Hjá ÍH var Bjarki Jóhannsson frábær með 14 mörk. Kristján Rafn Oddsson varði 11 skot.
Hjá Val 2 var Sigurður Atli Ragnarsson markahæstur með 7 mörk. Jens Sigurðarson varði 12 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.