HK fóru austur fyrir fjall og náðu í góðan sigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jónas Karl Gunnlaugsson (Sigurður Ástgeirsson)

HK 2 og Selfoss 2 mættust í dag á Selfossi í Grill 66 deild karla.

HK mættu hrikalega grimmir og ferskir til leiks og voru komnir yfir í 2-7 þegar lítið var búið af leiknum. Leiddu þeir allan fyrri hálfleikinn og það örugglega. Mest náðu þeir að komast 7 mörkum yfir. Staðan í hálfleik var 16-19.

Í seinni hálfleik voru þeir áfram mun betri aðilinn og forskotið aldrei í hættu. Mest fóru þeir 8 mörkum yfir og Selfoss ógnaði þeim aldrei að neinu ráði. Að lokum fór það svo að lokatölur urðu 33-39. Frábær ferð hjá Kópavogsdrengjum austur fyrir fjall á Selfoss og góð 2 stig.

Hjá Selfoss 2 var Aron Leo Guðmundsson með 12 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 11 skot.

Hjá HK 2 var Patrekur Guðni Þorbergsson með 14 varin skot. Styrmir Hugi Sigurðarson var atkvæðamestur með 8 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top