Guðmundur Rúnar Guðmundsson - Fjölnir (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust Fjölnir og Grótta í Grill 66 deild karla í Egilshöll.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og skemmtilegur. Liðin skiptust á að hafa forskot en heilt yfir voru Grótta sterkari aðilinn. Grótta voru yfir í hálfleik, 15-18 voru hálfleikstölur.
Seinni hálfleikur var svo einstefna. Fjölnismenn sáu aldrei til sólar. Þeir voru aldrei líklegir til að koma tilbaka. Mest náðu Gróttu menn 10 marka forskoti. Fór það svo að lokatölur urðu 26-36 fyrir gestina af Nesinu.
Hjá Gróttu var Hannes Pétur Hauksson með stórleik og varði 18 skot. 3 leikmenn voru með 6 mörk.
Hjá Fjölni var Aðalsteinn Örn markahæstur með 5 mörk. Markvarslan skilaði þeim 13 boltum. Gamli refurinn Viktor Alex Ragnarsson varði m.a 7 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.