Daníel Berg Grétarsson - Hvíti riddarinn (Eyjólfur Garðarsson)
Í dag mættust Hvíti Riddarinn og HBH í Mosfellsbæ í Grill 66 deildinni. Leiktíminn var frekar óvenjulegur eða kl. 16:30.
Hvíti Riddarinn mættu mun sterkari og ákveðnari til leiks og eftir korter var staðan 9-4 fyrir heimamenn. Áfram héldu Mosfellingar á bensíngjöfinni og fóru þeir með 6 marka forskot inn í hálfleikinn. 17-11 voru hálfleikstölur.
Í seinni hálfleik héldu Mosfellingar áfram uppteknum hætti. Eyjapeyjarnir náðu þó að minnka muninn í 3 mörk en nær komust þeir ekki. Endaði það svo að Hvíti Riddarinn sigraði að lokum 29-23. Sanngjörn og öruggur sigur.
Hjá Hvíta Riddaranum voru Adam Ingi og Alexander Sörli markahæstir með 6 mörk. Sigurjón Bragi varði 12 skot.
Hjá HBH var gamli línutankurinn Bergvin Haraldsson markahæstur með 9 mörk. Gabríel Ari varði 8 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.