Fyirliðinn sneri til baka eftir langa fjarveru
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Magnús Öder Einarsson 1 ((Eyjólfur Garðarsson)

Fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Fram á síðustu leiktíð Magnús Öder Einarsson sneri til baka á handboltavöllinn í síðustu umferð eftir langa fjarveru en hann hefur glímt við þrálát meiðsli fyrri hluta tímabils.

Magnús var í leikmannahópi Fram í sigrinum gegn HK í 19.umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn en þetta var einungis hans þriðji leikur á tímabilinu. Magnús var í leikmannahópi Fram gegn Selfossi og Haukum í 3. og 4.umferðinni en í kjölfarið gekkst hann undir aðgerð.

Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk úr þremur tilraunum í fjögurra marka sigri Fram á HK 33-29. Fram er í 7.sæti deildarinnar með 22 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Ljóst er að Fram fer ekki neðar í deildinni en liðið er í harðri baráttu við KA og ÍBV um að komast ofar í töflunni.

Það er ljóst að Magnús Öder mun hjálpa Fram á lokaspretti tímabilsins en liðið mætir Val 5.mars á útivelli áður en liðið leikur gegn ÍBV og Stjörnunni í síðustu tveimur leikjum Olís-deildarinnar áður en 8-liða úrslitin hefjast.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top