Þorsteinn Gauti meiddur á ökkla
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson leikmaður Íslands- og bikarmeistara Fram og finnska landsliðsins hefur ekkert leikið með KA í undanförnum tveimur leikjum í Olís-deild karla.

Einar Jónsson þjálfari Fram sagði í samtali við Handkastið á dögunum að Þorsteinn Gauti hafi meiðst á ökkla í leik Fram gegn KA í 17.umferð Olís-deildarinnar. Hann hafi ekkert æft með liðinu í kjölfarið og óvíst hvenær hann snýr aftur til baka.

Þorsteinn Gauti var á dögunum valinn í 16 manna leikmannahóp finnska landsliðsins sem mætir Svartfjallalandi í tveimur leikjum í forkeppni heimsmeistaramótsins. Óvíst er með þátttöku hans í því verkefni vegna meiðslanna.

Þorsteinn Gauti hefur því misst af leikjum Fram gegn ÍR og HK í síðustu tveimur umferðum en það hefur ekki komið að sök og hafa Framarar unnið báða leikina. Fram er í 7.sæti deildarinnar með 22 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.

Fram mætir toppliði Vals föstudaginn 5.mars, síðan fær liðið ÍBV í heimsókn áður en liðið mætir Stjörnunni í lokaumferð Olís-deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top