Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 21.umferð fari í Olís deild karla. KA - FH (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: FH FH fara í heimsókn norður á land eftir ótrúlegan lokasekúndur gegn Aftureldingu í síðustu umferð. KA gerði góða ferð í Garðabæinn og niðurlægði Stjörnunna án Bjarna Ófeigs. FH á ennþá séns á deildararmeistaratitlinum meðan KA eru að eltast við heimavallarrétt í úrslitakeppninni. Mig grunar að KA séu að spara Bjarna Ófeig fyrir úrslitakeppnina og tel ég því að FH fari norður og vinni í mjög spennandi leik. Valur – HK (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur HK eru komnir í góða stöðu með 8.sætið í deildinni og gæti þetta því verið einskonar general prufa hjá liðunum fyrir úrslitakeppnina þar sem ég tel að Valur verði deildarmeistari. En til þess að það gerist verða Valur að vinna þennan leik. Valshópurinn glímir við mikil meiðsli er mér sagt en ég held það komi ekki að sök í þessum leik og Valsmenn klári HK örugglega og verði einum sigri frá deildarmeistaratitli. Afturelding – Þór (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: Afturelding Liðin gerðu jafntefli í fyrri umferðinni í miklu spennuleik á Akureyri. Þórsarar eru í öruggu sæti í deildinni eins og er en það gæti verið gjörbreytt aðstaða eftir leiki kvöldins. Afturelding sýndu góða takta gegn FH eftir að hafa spilað illa eftir áramót og ég held þeir haldi uppteknum hætti í kvöld og vinni Þórsara á heimavelli. Haukar – Selfoss (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar Haukar eru að spila gífurlega vel eftir tapið gegn FH i deildinni. Selfoss hafa verið smá vonbrigði í síðustu leikjum þar sem þeir mættu liðum sem þeir áttu klárlega tækifæri gegn. Aftur á móti hefur Selfoss oft gengið betur með lið sem þeir eiga fyrirfram ekki að eiga séns í. Það verður þó ekki upp á teningnum í kvöld og Haukar halda áfram að hrella liðin með góðri vörn og hraðaupphlaupum og keyra yfir Selfyssingar á heimavelli. ÍR – Stjarnan (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: ÍR Sannkallaður "do or die" leikur fyrir bæði lið. ÍR verða að vinna ef þeir ætla að halda sæti sínu í deildinni meðan Stjörnunni dugar stig til þess að tryggja í það minnsta umspilssæti. ÍR að koma frá Eyjum úr miklum markaleik þar sem tækifærið fyrir sigur var sannarlega til staðar meðan Stjarnan voru hræðilegir gegn KA á föstudaginn. Ég held að ÍR vinni þennan leik og haldi spennunni í botnbaráttunni allt fram í lokaumferðina. Fram – ÍBV (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: Fram Annar leikur sem getur gjörbreytt stöðunni í deildinni þar sem allt er í einum hnapp um miðja deild. Bæði lið hafa átt góðu gengi að fagna undanfarið og koma high flying inn í leikinn. Ég held að Fram fari með sigur af hólmi í þessum leik og komist yfir ÍBV í deildinni fyrir lokaumferðina. 20.umferð (4.réttir)
19.umferð (4.réttir)
18.umferð (5.réttir)
17.umferð (2 réttir)
16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.