
Línumaðurinn stóri og stæðilegi, Kristófer Tómas Gíslason hefur framlengt samningi sínum við uppeldisfélag sitt Fram. Þetta tilkynnti félagið í morgunsárið. Hefur Kristófer Tómas skrifað undir þriggja ára samning við Fram en Kristófer sem er nýráðinn 18 ára gamall lék með 3.flokki Fram, Fram 2 í Grill66-deildinni og þá kom hann einnig við sögu í nokkrum leikjum í Olís-deildinni í vetur. ,,Kristófer sýndi mikinn dugnað í lyftingarsalnum í vetur, samhliða þessum þremur verkefnum og er virkilega ánægjulegt að sjá unga menn sem tilbúnir eru að leggja á sig vinnu til að ná langt. Það er alltaf ánægjulegt að sjá fjölskyldu stemninguna í félaginu, en foreldrar Kristófers eru mjög virk í starfinu í kringum meistaraflokkana svo má sjá tvær yngri systur Kristófers daglega í Lambhagahöllinni," segir í tilkynningunni frá Fram en Gísli Freyr Valdórsson faðir Kristófers er formaður handknattleiksdeildar Fram. ,,Við erum mjög ánægð að halda í Kristófer og hlökkum til að fylgjast með honum vaxa og dafna hjá okkur á komandi tímabilum," segir ennfremur í tilkynningunni. Kristófer Tómas hefur verið hluti af gríðarlega sterku 2008 landsliði Íslands og fær væntanlega stærra hlutverk í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.